miðvikudagur, maí 31, 2006

Það gengur ekkert hjá mér að setja inn nýjar myndir... reyni kannski að koma mér í það um helgina ;)

Annars lítið að frétta, erum búin að fá að vita að við getum leigt íbúðina lengur :D það var mjög hentugt að þurfa ekki að fara að flytja og eitthvað vesen. Prófverkefnið mitt gengur bara vel er búin að gera bæði módelin núna í lérefti og fer líklegast á morgun og kaupi efni. Dagarnir líða bara svo hratt núna að það er ótrúlegt....

föstudagur, maí 12, 2006

Jæja....... hvað segiði.... ekkert að gerast á þessu blessaða bloggi hjá mér ;)

Það er allavega ekki kuldi lengur í gangi hérna í Danmörku eins og síðasta færsla hljóðar. Búið að vera geggjað veður í næstum því tvær vikur núna, bara stuttbuxnaveður... ekki slæmt það ;)

Núna er maður byrjaður í próftörninni... :/ sem stendur yfir í 7 vikur, vona bara að það gangi sem best :) Svo bíður maður bara spenntur eftir tískusýningunni sem við erum að skipuleggja hægri vinstri þessa dagana.

Jæja, best að koma sér í að sauma kjóla sem ég var búin að lofa að gera... þar sem að maður er búin að fá nýja saumavél :D

Já... og svo er ég að vinna í því að setja inn nýjar myndir :)