fimmtudagur, janúar 27, 2005

Vorum að setja inn nýjar myndir frá jólunum og áramótunum á myndasíðuna endilega kíkið á það :o)

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Úfff.. vorum að koma af æfingu og er frekar þreytt... en það bjargaðist allt saman þegar við fengum okkur góða pítu með íslenskri pítusósu.. ummm... ;)

Allt að gerast í frakkanum, búin að klippa út í efnið og byrja að sauma það saman á morgun... hlakka til að sjá hvernig það kemur út :o)

Svo er ég alveg að verða geðveik á öllum þessum útsölum niður í bæ
:( Allar þessar freistingar og maður á engann pening til að eyða... mér finnst það sko ekkert skemmtilegt....

sunnudagur, janúar 16, 2005

Jæja... maður er nú búinn að vera ansi lengi að koma sér í gang að skrifa á þessa heimasíðu.. en núna mun það breytast :)

Erum búin að hafa það rosa fínt síðan að við komum aftur út. Fyrsta vikan var soldið erfið en núna er þetta allt að koma. Fórum um daginn og keyptum okkur kort í Fitnessdk sem er fín stöð hérna rétt hjá okkur. Núna þýðir sko ekkert að vera latur... ætlum að koma okkur í gott form hérna úti ;)
Helgin sem er að líða er búin að vera róleg... fengum Bjössa og Hebbu í mat í gær... ummm.. pizza.. var virkilega góð... nammi nammi namm.... Síðan horfðum við á mynd sem heitir Forgotten.. hún var soldið spúkí.. allt öðruvísi en ég átti von á.

Var í fyrsta skipti áðan að kaupa mér eitthvað á ebay og Helgi var í kasti hérna við hliðina á mér.. það var eins og hann væri að kenna einhverjum steinaldarmanni á tölvu í fyrsta skipti ;) hí híhí... Ég vona nú bara að varan komi til mín fyrir næstu jól : /

Erum að gera frakka í skólanum núna.. voða gaman... erum samt ekki alveg nógu ánægð með kennarann... hinn var svo frábær sem við vorum með fyrir jól.. en við verðum nú víst að gefa þessari smá sjens... Fór í vikunni og keypti kanínuskinn sem ég ætla að nota í frakkann, fjólublátt á litinn frekar cool, og leður líka... vona að þetta komi vel út :)